Erlent

Bæta þarf kynfræðslu

Greiningum á klamydíusmitum hefur fjölgað verulega í Færeyjum undanfarinn áratug samkvæmt lýðheilsufræðingnum Malan Egholm sem hefur gert ritgerð um hvernig fyrirbyggja megi klamydíusmit í Færeyjum. Vefútgáfa Útvarps Færeyja greinir frá þessu.



Árið 1997 greindust 5,1 prósent þeirra sem komu í kynsjúkdómaskoðun í Færeyjum með klamydíu. Árið 2006 var þetta hlutfall komið upp í 11,2 prósent og hafði því meira en tvöfaldast.



Egholm segir mikilvægt að bæta kynlífsfræðslu í skólum svo börn læri um kynsjúkdómavarnir og að hrinda þurfi af stað almennum upplýsingaherferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×