Erlent

Konan látin sem fæddi barn í dái

Kona sem fæddi barn meðan hún var í dái lést á föstudaginn í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Annetta Miller Clark var í dái í fimm ár eftir að hún lenti í bílslysi ásamt manni sínum sem lést stundu eftir slysið.



Annetta, sem fékk alvarlega heilaáverka, var barnshafandi og fæddi son fimm mánuðum síðar sem tekinn var með keisaraskurði.

Michael, sem er orðinn fjögurra ára, heimsótti móður sína reglulega að sögn móður Annette. „Michael sat yfirleitt við rúmið, tók upp hárburstann og fór að bursta á henni hárið. Það var erfitt að horfa á.“ -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×