Erlent

Taívanar kjósa um aðild að SÞ

Chen Shui-bian
Chen Shui-bian

Yfirvöld í Taívan hétu því á miðvikudag að þjóðaratkvæðagreiðsla um að ganga á ný í Sameinuðu þjóðirnar yrði haldin þrátt fyrir hörð mótmæli frá Kína. Atkvæðagreiðslan fer líklega fram á næsta ári að sögn forseta Taívans, Chen Shui-bian.



Verði inngangan samþykkt þarf öryggisráð SÞ að staðfesta hana sem má teljast ólíklegt að gerist þar sem Kína hefur neitunarvald í ráðinu. Kínversk stjórnvöld álíta Taívan hluta af Kína þótt eyjan hafi haft sjálfsstjórn frá árinu 1949.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×