Eigum möguleika gegn öllum nema Hollendingum 25. nóvember 2007 17:19 Logi Ólafsson
Logi Ólafsson, fyrrum landsliðsþjálfari og sérfræðingur Vísis segist nokkuð sáttur við mótherja landsliðsins í undankeppni EM. Hann segir íslenska liðið vel geta staðið í þjóðum eins og Skotum og Norðmönnum. "Ég er bara bjartsýnn fyrir hönd þjóðarinnar í þessum riðli. Það hjálpar okkur kannski til við niðurröðunina á leikjunum að vera í fimm liða riðli því þá erum við að sleppa við leikina sem er verið að spila kannski í nóvember, því þá eru leikmennirnir sem eru að spila hérna heima dálítið út úr myndinni," sagði Logi um þá staðreynd að íslenska liðið spilar í fimm liða riðli. Hann segir liðið eiga ágæta möguleika á að gera vel í keppninni. "Ég held að við eigum alveg möguleika gegn öllum þessu mótherjum fyrir utan kannski Hollendinga. Skotarnir voru auðvitað með okkur í riðli fyrir fjórum árum síðan og þá fannst mér íslenska liðið eiga að geta unnið þá, en þeir eru sterkari í dag og voru hársbreidd frá því að komast á EM." "Ég þekki líka vel til norska liðsins og íslenska liðið á alveg að geta strítt þeim á góðum degi. Ég var svo með liðið þegar það spilaði við Makedóníu á sínum tíma. Þá gerðum við jafntefli við þá heima og töpuðum 1-0 úti þannig að ég held nú að það sé þjóð sem við eigum að geta unnið." "Hollendingarnir eru frábærir mótherjar fyrir knattspyrnuáhugamenn og það verður gaman að fá þá hérna heim. Þeir hafa alltaf verið með mjög sterkt lið þó þeir hafi ekki náð að slá í gegn, en ég held að við getum alveg náð að stríða þeim á heimavelli. Þeir eru þó með sterkasta liðið í riðlinum að mínu mati." "Það var líka fínt að þurfa ekki að fara mjög langt í útileikina því það munar um hvern klukkutíma sem menn þurfa að ferðast í þessu. Ætli verði ekki erfiðast að fara til Skopje í Makedóníu - það var engin skemmtireisa að fara þangað á sínum tíma."
Fótbolti Mest lesið Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Fleiri fréttir Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Aron: 4-2 verður að duga í dag Sjá meira