Fótbolti

Ísland sleppur við lengsta ferðalagið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Armeníu og Kasakstan í undankeppni EM 2008 um helgina. Bæði lið eru í sama styrkleikaflokki og Ísland þegar dregið verður í riðla í undankeppni HM 2010 á sunnudag.
Úr leik Armeníu og Kasakstan í undankeppni EM 2008 um helgina. Bæði lið eru í sama styrkleikaflokki og Ísland þegar dregið verður í riðla í undankeppni HM 2010 á sunnudag. Nordic Photos / AFP

Á sunnudaginn verður dregið í riðla í undankeppni HM 2010 í Evrópu. Ísland er í sama styrkleikaflokki og Kasakstan og sleppur því við lengsta mögulega ferðalagið.

Ísland og Kasakstan eru í fimmta og næstneðsta styrkleikaflokki. Alls verður dregið í níu riðla - átta þeirra innihalda sex lið og einn riðill fimm lið. Níu lið eru því í hverjum styrkleikaflokki, nema þeim neðsta sem hinniheldur átta lið.

Ísland sleppur reyndar afar vel hvað ferðalög varðar því fjögur af þeim sex löndum sem eru hvað fjærst Íslandi í undankeppni HM 2010 eru einnig í fimmta styrkleikaflokki. Hér ræðir um Kasakstan (6158 km), Aserbaídsjan (5180 km), Armeníu (4940 km) og Georgíu (4814 km).

Landsliðið gæti þó lent í riðli með Ísrael (5234 km) eða Kýpur (4872 km) sem eru hin löndin af þeim sex fjarlægustu.

Vísir stillir hér upp til gamans tveimur riðlum sem Ísland gæti mögulega dregist í. Annars vegar með þeim löndum sem lengst er að ferðast til og hins vegar þeim löndum sem bjóða upp á stystu ferðalögin.

Lengsti riðillinn (21.608 km):



1. Grikkland 4160 km (Aþena)

2. Ísrael 5234 km (Tel Aviv)

3. Úkraína 3372 km (Kænugarður)

4. Kýpur 4872 km (Nicosia)

5. Ísland

6. Malta 3970 km (Valletta)

Stysti riðillinn (7322 km):

1. Holland 2019 km (Amsterdam)

2. Skotland 1341 km (Glasgow)

3. Norður-Írland 1389 km (Belfast)

4. Wales 1776 km (Cardiff)

5. Ísland

6. Færeyjar 797 km (Þórshöfn)

Fyrirkomulagið á undankeppninni er þannig að efstu liðin í öllum níu riðlunum komast beint í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku.

Þau átta lið sem ná bestum árangri í öðru sæti riðlanna (af níu riðlum) taka þátt í fjórum umspilsviðureignum, þar sem leikið er heima og að heiman, um laust sæti á HM.

Til að ákvarða bestan árangur liða í öðru sæti reiknast aðeins árangur úr leikjum gegn þeim liðum sem náðu fyrsta, þriðja, fjórða og fimmta sæti viðkomandi riðils.

Samtals komast því þrettán Evrópuþjóðir á HM 2010 í Suður-Afríku.

Eitt Evrópuland tekur nú þátt í fyrsta skipti í undankeppni HM, Svartfjallaland. Samtals taka 53 þjóðir þátt í undankeppninni en 50 þjóðir tóku þátt í undankeppni EM 2008. Auk Svartfjallalands bætast við lið Austurríkis og Sviss sem tóku ekki þátt í undankeppni EM 2008 þar sem löndin eru gestgjafar úrslitakeppninnar.

Evrópulöndin raðast þannig niður í styrkleikaflokka:

1. styrkleikaflokkur:

1. Ítalía

2. Spánn

3. Þýskaland

4. Tékkland

5. Frakkland

6. Portúgal

7. Holland

8. Króatía

9. Grikkland

2. styrkleikaflokkur:

10. England

11. Rúmenía

12. Skotland

13. Tyrkland

14. Búlgaría

15. Rússland

16. Pólland

17. Svíþjóð

18. Ísrael

3. styrkleikaflokkur:

19. Noregur

20. Úkraína

21. Serbía

22. Danmörk

23. Norður-Írland

24. Írland

25. Finnland

26. Sviss

27. Belgía

4. styrkleikaflokkur:

28. Slóvakía

29. Bosnía

30. Ungverjaland

31. Moldóva

32. Wales

33. Makedónía

34. Hvíta Rússland

35. Litháen

36. Kýpur

5. styrkleikaflokkur:

37. Georgía

38. Albanía

39. Slóvenía

40. Lettland

41. Ísland

42. Armenía

43. Austurríki

44. Kasakstan

45. Aserbaídsjan

6. styrkleikaflokkur:

46. Liechtenstein

47. Eistland

48. Malta

49. Lúxemborg

50. Svartfjallaland

51. Andorra

52. Færeyjar

53. San Marínó




Fleiri fréttir

Sjá meira


×