Íslenski boltinn

Tekur tíma að jafna sig á þessu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Margrét Lára í leik gegn færeysku meisturunum í KÍ frá Klaksvík í leik liðanna í sumar. Mynd/Matthías Ægisson
Margrét Lára í leik gegn færeysku meisturunum í KÍ frá Klaksvík í leik liðanna í sumar. Mynd/Matthías Ægisson

„Þetta er alveg skelfilegt. Það mun taka okkur tíma að jafna sig á þessu," sagði Freyr Alexandersson, annar þjálfara kvennaliðs Vals, í samtali við Vísi. Valsstúlkur féllu úr leik í Evrópukeppninni en þær töpuðu fyrir Everton í dag.

Valsliðið átti þó möguleika á að komast í átta liða úrslitin en þá þurfti Frankfurt að leggja belgíska liðið Wezemaal. „Undir öllum eðlilegum kringumstæðum ætti Frankfurt að vinna þetta lið fyrirhafnarlítið. En þýsku stelpurnar voru algjörlega áhugalausar," sagði Freyr.

Frankfurt var öruggt áfram fyrir þennan leik. „Maður er eiginlega orðlaus, þetta er ótrúlega svekkjandi. Belgísku stelpurnar mega eiga það að þær börðust vel og lögðu sig allar fram. En frammistaða Frankfurt var mjög léleg," sagði Freyr.

Spurður út í leik Vals gegn Everton var Freyr allt annað en sáttur við spilamennsku Valsliðsins. „Frammistaða okkar var einfaldlega döpur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×