Biðst afsökunar á óförunum á Íslandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. september 2007 17:27 Steve Davis, leikmaður Norður-Írlands. Nordic Photos / Getty Images
Steve Davis, miðvallarleikmaður Norður-Írlands, hefur beðist afsökunar á óförum sinna manna í Lettlandi og á Íslandi. Þetta kemur fram á blogginu hans en færslur hans fyrir septembermánuð birtust á heimasíðu Belfast Telegraph í dag. Norður-Írland átti tvo útileiki í forkeppni EM 2008, gegn Lettlandi og Íslandi. Staða liðsins í riðlinum var góð en það þurfti helst sex stig úr leikjunum til að halda í vonina um sæti í úrslitakeppni EM. Davis sagði að tapið gegn Lettum hafi eitt og sér verið nógu slæmt. Daginn fyrir leikinn í Reykjavík segir hann að þeir séu staðráðnir í að bæta fyrir tapið í Lettlandi. Fyrir nokkrum árum hefðu þeir kannski getað vonast eftir jafntefli í Reykjavík en nú séu þeir dagar liðnir. „Ef okkur varð illt af Lettlandsleiknum líður okkur nú eins og það hafi verið sparkað í okkur er við lágum í grasinu,"skrifaði Davis eftir 2-1 tapið fyrir Íslandi. „Ég trúi því ekki að við höfum gengið af velli með núll stig. Mér fannst að við spiluðum nokkuð vel og eftir að við fengum á okkur mark snemma í leiknum vorum við betra liðið. Markið þeirra hefði getað gert út um leikinn en við komum til baka og vorum nálægt því að skora nokkrum sinnum. Í hálfleik vissum við vel að við vorum enn með í leiknum og ég hélt ávallt að við myndum skora. Þegar Eiður Guðjohnsen kom inn á bættum við okkar leik og David Healy náði í vítaspyrnu. Sá litli klikkar aldrei og hann skoraði af öryggi. Við fundum fyrir sigrinum. En um leið og leiktíminn var að renna út gerðist hið óhugsanlega og Keith Gillespie skoraði slysalegt sjálfsmark. Það þýddi annað tap. Sumir leikmanna Íslands sögðu okkar leikmönnum að við hefðum átt skilið að sigra í leiknum. Það sýnir bara hvað fótbolti getur verið grimm íþrótt. Það var ekkert meiriháttar að vera í búningsklefanum eftir leik. Eftir Lettlandsleikinn vissum við að tapið var algerlega okkur að kenna en nú voru hlutirnir öðruvísi. Ég var tekinn af velli í seinni hálfleik og var afar taugaóstyrkur á bekknum. Þegar maður er inn á vellinum getur maður að minnsta kosti reynt að hafa áhrif á leikinn. Það verður nú enn erfiðara að komast í úrslitakeppnina en við verðum að halda í trúna." Davis skrifar enn frekar daginn eftir leik hafi hann enn ekki hugmynd um hvernig hans menn fóru að því að tapa leiknum. Hann harmaði úrslitin í leikjunum en sagði að það hefði alltaf verið háttur Norður-Íra að gera sér erfitt fyrir.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Víkingur R. - ÍBV | Leita fyrsta sigursins í tvo mánuði Newcastle yngir upp á sumri breytinga Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Sjá meira