Frakkar vígreifir gegn Íran Þórir Guðmundsson skrifar 17. september 2007 18:25
Frakkar hvöttu í dag til hertra viðskiptaþvingana gegn Íran en sögðu að leita yrði allra leiða til að koma í veg fyrir stríð. Bernard Kouchner hinn nýji utanríkisráðherra Frakka skaut fyrsta skotinu í þessari hrinu deilna Írana og umheimsins þegar hann kom fram í sjónvarpsviðtali í gær. Kouchner sagði fréttamann: "Við verðum að búa okkur undir það versta." Þá spurði fréttamaðurinn: "Og hvað er það versta?", en því svaraði Kouchner, "Það er stríð, herra minn." Ahmedinejad forseti Írans svaraði í dag með því að segja að allir virtu rétt Írana til að framleiða kjarnorku, nema eitt eða tvö ríki sem enn teldu sig til stórvelda. Á aðalfundi Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar í Vín í dag reyndi forstjóri stofnunarinnar að lægja öldurnar. Muhammed ElBaradei sagðist ekki telja að um yfirvofandi hættu væri að ræða í Íran, sem krefðist annarra úrræða en sáttaviðræðna. Íranar segja að kjarnorkuvinnsla í landinu sé til að framleiða raforku en ekki vopn. En frönsk stjórnvöld gáfu ekkert eftir í dag og Kouchner utanríkisráðherra ræddi við starfsbræður sína innan Evrópusambandsins um frekari efnahags- og viðskiptaþvinganir á hendur Írönum. Yfirlýsingar Frakka eftir valdatöku Sarkosys forseta þykja nálgast mjög málflutning Bandaríkjamanna. Íranar sögðu hins vegar í dag að stríðsæsingatal væri Frökkum ekki sæmandi.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Sjá meira