Kvarta undan káfi á Kastrup 15. september 2007 16:26 Frá Kastrup. MYND/Elín Lilja
Það ríkir allt annað en gleði meðal danskra flugþjóna vegna nýrra öryggisreglna sem tóku gildi á Kastrup-flugvelli í dag. Samkvæmt þeim eiga verðir í öryggishliðum að leita með höndunum á öllum farþegum, þar á meðal í klofi og á milli brjósta. Fram kemur á vef Nyhedsavisen að um sé að ræða nýjar alþjóðlegar reglur sem sé komið á til tryggja að fólk komist ekki með sprengiefni um borð í flugvélar, en hryðjuverkamenn hafa verið gripnir með sprengjur í bæði skóm og nærfötum. Talsmenn flugþjóna eru hins vegar æfir og telja gengið alltof nálægt fólki. „Það er búið að kanna okkur út frá öryggissjónarmiðum. Ég hef ekki séð neina sönnun fyrir því að þetta komi í veg fyrir hryðjuverk," segir Verner Lundtoft Jensen, formaður félags flugþjóna, og vísar þar til káfsins. Upphaflega stóð til að leita á fólki með sérstökum skönnum en eftir tilraunir í sumar þar sem öryggisverðir leituðu á fólki með höndunum ákváðu flugvallaryfirvöld á Kastrup að nota fremur þá aðferð. „Flestir telja að þetta ítarlega eftirlit veiti þeim öryggi. En við fáum líka eina og eina athugasemd um að við séum of nærgöngul. Það finnst okkur leitt en það er því miður nauðsynlegt,“ segir yfirmaður upplýsingamála á Kastrup-flugvelli. Haft er eftir hryðjuverkasérfræðingi sem unnið hefur með bandarískum flugmálayfirvöldum að líkamsleit sem þessi sé ekki rétta leiðin. „Hvað verður það næst? Ætla þeir að banna fartölvur því það geta leynst sprengjur í þeim eða þurfum við að vera nakin í flughöfnum því föt geta innihaldið efni sem geta valdið sprengjuhættu? Þeir ættu frekar að kenna starfsmönnum að bera kennsl á hryðjuverkamenn," segi Bogdan Dzakovic, sérfæðingur í hryðjuverkavörnum.
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira