Innlent

Eldur í Pennanum

Eldur kviknaði í verslun Pennans við Strandgötu í Hafnarfirði laust fyrir klukkan sex í morgun. Slökkviliðið kom á vettvang og slökkti eldinn áður enn hann næði útbreilðslu, en húsnæðið fylltist af reyk og sóti þannig að töluvert tjón hlaust af.

Það skipti sköpum að öryggiskerfi í versluninni gerði öryggisverði viðvart um að ekki væri allt með felldu, og þegar hann kom á vettvang fann hann reykjarlykt og kallaði strax á aðstoð. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×