Erlent

Kosningar í Tælandi 23. desember

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Thaksin Shinawatra hefur verið sakaður um að misbeita valdi í ráðherratíð sinni.
Thaksin Shinawatra hefur verið sakaður um að misbeita valdi í ráðherratíð sinni.

Tælendingar munu ganga til kosninga þann 23. desember næstkomandi. Stjórnvöld í Tælandi höfðu ákveðið að halda kosningar eftir að ný stjórnarskrá yrði samþykkt í landinu en það gerðist fyrir viku síðan. Fimmtíu og átta prósent kjósenda samþykktu stjórnarskrárbreytingarnar sem fólu í sér takmörkun á valdi forsætisráðherra landsins. Fyrrverandi forsætisráðherra Tælands, Thaksin Shinawatra, hefur verið sakaður um að misnota vald sitt sem ráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×