Erlent

Bush vill halda alþjóðlega friðarráðstefnu

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í gærkvöldi að nauðsynlegt væri að halda alþjóðlega friðarráðstefnu til þess að endurnýja friðarviðræður á milli Ísrael og Palestínu. Viðræðurnar eiga að fara fram síðar á árinu og verður nágrönnum landanna tveggja einnig boðið. Hamas samtökin hafa hafnað hugmynd Bush alfarið. Þá tilkynnti Bush um fjárhagsaðstoð sem bráðabirgðastjórn Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, fær á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×