Erlent

Tveir menn kærðir fyrir morð í Suður-Afríku

Suður-afrískir saksóknarar hafa ákært tvo hæst settu starfsmenn öryggissveita stjórnvalda á aðskilnaðartímabili landsins fyrir morðtilraun. Þeir eru sakaðir um að hafa lagt á ráðin að myrða einn helsta andstæðing aðskilnaðarstefnunnar árið 1989. Báðir mennirnir hafa beðist fyrirgefningar vegna málsins en þeim voru gefnar upp sakir eftir að hafa rætt við sannleiks og sáttanefndina svokölluðu, sem gaf fólki upp sakir ef það gekkst við glæpum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×