Skiptar skoðanir um Beckham í Los Angeles 10. júlí 2007 13:42 David Beckham var umkringdur ljósmyndurum á Silverstone kappakstrinum á Englandi um helgina NordicPhotos/GettyImages
Flestir íbúar Los Angeles fagna því að David Beckham sé á leið til LA Galaxy í MLS deildinni og telja það knattspyrnunni í Bandaríkjunum til framdráttar. Helmingur íbúa í Los Angeles er þó af spænskumælandi uppruna og sumir þeirra eru ekkert of hrifnir af komu goðsins. Alexei Lalas, forseti LA Galaxy, segir að koma David Beckham muni koma knattspyrnunni betur á kortið í Bandaríkjunum og að aðrir leikmenn í deildinni muni geta notið góðs af því hve þekktur Beckham er á heimsvísu. "David höfðar til allra hópa og ég held að það sé sama hvort þú spyrð innflytjanda frá Mið-Ameríku eða húsmóður frá Orange County - allir vita hver Beckham er. Ef við hefðum fengið knattspyrnustjörnu frá Mið- eða Suður-Ameríku, er alls ekki víst að allir vissu hver hann væri." Fréttamenn ræddu við nokkra stuðningsmenn Galaxy eftir deildarleik liðsisn á dögunum og spurðu þá hvernig þeim litist á komu Beckham til LA. Diego Sologuren er 25 ára gamall stuðningsmaður LA Galaxy og er fæddur í Perú. Hann segir að Beckham muni opna dyrnar fyrir fleiri alþjóðlegar stjörnur að koma til Bandaríkjanna. "Beckham er frábær persónuleiki og það er mikilvægt að fá svoleiðis menn til félagsins. Í Suður-Ameríku er sagt að ef þú farir og spilir í MLS-deildinni - muni heimurinn ekki taka eftir því sem þú ert að gera þó þú standir þig vel. Þetta mun breytast með tilkomu David Beckham," sagði Sologueren. Ronaldo Cifuentes frá Gvatemala er hinsvegar ekki jafn hrifinn af komu goðsins og telur að það muni hafa neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir hinn almenna áhorfanda í MLS-deildinni. "Miðaverð á leiki, bílastæði og meira að segja verðið á pylsunum mun rjúka upp eftir að Beckham kemur hingað," sagði Cifuentes sem er 59 ára gamall og hefur verið ársmiðahafi hjá LA Galaxy í 12 ár. "Það er fullt af Suður- og Mið-Ameríkumönnum sem eru alveg eins góðir og hann sem kosta miklu minna. Beckham er ekkert annað en snoppufríður." Þá eru stuðningsmenn eins og hin 33 ára gamla Sonia Interiano sem flutti til Bandaríkjanna fyrir 20 árum síðan. "Hann er svo kynþokkafullur - hann er algjört æði. Hann er eina ástæða þess að við keyptum okkur ársmiða með Galaxy," sagði hún.
Fótbolti Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Handbolti Hver er staðan og hvað tekur við? Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Sjá meira