Erlent

Bush veitir Libby lausn frá fangelsi

Libby fer ekki í fangelsi.
Libby fer ekki í fangelsi.

Samkvæmt heimildum AP fréttastofunnar hefur George Bush ákveðið að veita Lewis Libby lausn undan tveggja og hálfs árs fangelsi. Forsetinn gaf í dag út tilskipun þess efnis og sagði við það tilefni að sér þætti fangelsisdómurinn of þungur. Libby mun hins vegar þurfa að greiða sekt að andvirði 15,5 milljóna króna.

 

Áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu fyrr í dag að Libby fengi ekki að fresta afplánun. Dómurinn var áfall fyrir Libby, sem líklegast hefði þurft að hefja afplánun eftir fáeinar vikur. Bandamenn Libbys þrýstu mjög á forsetann að veita honum náðun.

Libby var sakfelldur í mars fyrir að hafa logið og hindrað framgang réttvísinnar við rannsókn á upplýsingaleka um leyniþjónustumanninn Valerie Plame. Hann er æðsti starfsmaður Hvíta hússins sem hlýtur dóm síðan að upp komst um Íran/Contra hneykslið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×