Erlent

Búðafell bjargaði ólöglegum innflytjanda úr sjávarháska

Ef rýnt er í myndina sést að skipið var áður skráð á Fáskrúðsfirði.
Ef rýnt er í myndina sést að skipið var áður skráð á Fáskrúðsfirði. MYND/AFP

Ólöglegum innflytjanda var bjargað á dögunum úti fyrir ströndum Möltu. Maðurinn hafði verið í hópi 26 manna sem freistuðu þess að komast til Evrópu á lítilli bátskænu sem hvolfdi með þeim afleiðingum að aðeins fjórir komust lífs af. Manninum var bjargað um borð í togarann Búðafell sem skráð er á Möltu, en gerði áður út frá Fáskrúðsfirði eins og sjá má á myndinni.

Þrír félagar hans héldu lífi með því að hanga í túnfisksneti sem togarinn dró á eftir sér. Ekki er vitað hvaðan mennirnir lögðu af stað yfir Miðjarðarhafið en yfirvöld á Möltu segja að aðeins eitt lík hafi fundist til þessa. Fjöldi fólks ferst á hverju ári þegar það freistar þess að komast til Evrópustranda frá Afríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×