Henry segir Arsenal þurfa fleiri reynslubolta 30. maí 2007 10:03 Henry á blaðamannafundinum í Peking í morgun. MYND/AFP
Thierry Henry, sóknarmaður Arsenal, lýsti því yfir í fjölmiðlum í morgun að hann væri orðinn langþreyttur á því að enda í fjórða sæti. Hann neitaði að tala um orðróma sem tengja hann við Barcelona en virtist ekki vera jafn ánægður og hann hefur lýst yfir undanfarið. „Síðan ég byrjaði að leika knattspyrnu hafa orðrómar ávallt umkringt mig og það á ekkert eftir að hætta." sagði Henry, sem skrifaði undir fjögurra ára samning við Arsenal í maí á síðasta ári, á fréttamannafundi í Peking í Kína í morgun. „Eins og ég sagði í síðustu viku, er ég sem stendur leikmaður Arsenal. Það var erfitt að sjá hversu langt á eftir toppliðunum við enduðum. Efstu fjögur liðin hafa lengi verið þau sömu. Ég er reyndar orðinn frekar pirraður á því að verða síðastur í þeirra hópi." sagði Henry sem er á ferðalagi um Asíu fyrir Reebok. Hann bar síðan saman liðið sem sigraði í ensku úrvalsdeildinni án þess að tapa leik árið 2004 og Arsenal liðið í dag. „Ég hef verið í liði sem tapaði ekki leik alla leiktíðina svo ég veit hvað þarf til þess að bera sigur úr býtum. Stundum þegar margir ungir og óreyndir leikmenn eru í liðinu er erfitt að ná sama anda og þar af leiðandi sömu úrslitum og þá. Á þeim tíma voru menn í liðinu sem höfðu spilað í tíu til 15 ár og unnið fjölmarga titla." sagði Henry. „Það hefur margt verið að gerast hjá félaginu að undanförnu og kannski þarf það að byrja upp á nýtt." sagði hann að lokum.
Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Körfubolti Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Fleiri fréttir „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ Sjá meira