Slúðrið í enska í dag Jónas Haraldsson skrifar 22. maí 2007 12:00 Kewell gæti verið á leið sinni frá Liverpool ef eitthvað er að marka slúðrið í dag. MYND/AFP
Margt er að gerast í ensku knattspyrnunni þessa daganna þó svo að leiktímabilið sé búið. Mikið er spáð í hver verður hvar og hérna má sjá helstu orðrómana sem breska ríkisútvarpið, BBC, tók til í dag. Leikmannakaup Andriy Shevchenko, leikmanni chelsea, hefur verið sagt af Roman Abramovich að hann geti farið aftur til AC Milan ef þeir ná samkomulagi um kaupverð. Ef það gengur eftir mun Chelsea berjast við Real Madrid um Carlos Tevez (The Sun). Everton vill kaupa Phil Bardsley, leikmann Manchester United, sem var á láni hjá Aston Villa á síðstu leiktíð (Daily Mirror). West Ham ætlar sér að kaupa Antti Niemi, markvörð Fulham, í sumar (Daily Mirror). Sunderland ætlar sér að kaupa Gavin McCann á ný frá Aston Villa (Daily Mirror). Birmingham ætlar sér að kaupa markvörð Liverpool, Scott Carson (Daily Mirror). Marcus Gayle, fyrrum framherji AFC Wimbledon, hefur gengið til liðs við liðið á ný eftir sex ára fjarveru (Daily Mirror). Rafael Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, ætlar sér að gjörbreyta liði sínu svo hann geti keypt fræga leikmenn - þó svo að Liverpool vinni meistaradeildina (Ýmsir). Darren Bent, leikmaður Charlton, Samuel Eto'o, Fernando Torres, Daniel Alves og Gabriel Milito eru efstir á innkaupalista Benitez (Sun). Craig Bellamy, Sami Hyypia, Bolo Zenden, Harry Kewell og Mark Gonzalez eru allir á leiðinni út (Independent). Tottenham ætlar sér að reyna að laða markvörð Hearts Craig Gordon til sín sem leiðir til efasemda um framtíð Paul Robinson hjá félaginu (Sun). West Ham vill fá varnarmann Middlesbrough, Chris Riggott, til sín en hann er metinn á tvær milljónir punda (Sun). Chelsea er enn að velta fyrir sér hvort það eigi að gera tilboð í Tal Ben Haim, leikmann Bolton. Chelsea bætist þá í hóp West Ham og Portsmouth (Independent). Arsenal hefur bæst í hóp Tottenham og Manchester United sem reyna nú að klófesta vinstri bakvörðinn Gareth Bale, leikmann Southampton (Guardian). Portsmouth ætlar sér að krækja í Titus Bramble, hinn mistæka varnarmann Newcastle (Daily Star). Tottenham er nálægt því að landa framherja Charlton, Darren Bent, fyrir tíu milljónir punda (Daily Express). Annað Slúður Sam Allardyce, nýr stjóri Newcastle, er búinn að ræða við Michael Owen og er hann hrifinn af fyrirætlunum hins nýja framkvæmdastjóra (Ýmsir). Enginn hinna fjögurra stóru klúbba vill kaupa Owen (Daily Express). Bryan Robson, nýji stjóri Sheffield United, hefur þegar hringt í Phil Jagielka, Paddy Kenny og Michael Tonge til þess að reyna að sannfæra þá um að vera áfram hjá félaginu (Sun). Neil Warnock, fyrrum stjóri Sheffield, þykir líklegur til þess að taka við Norður-Írlandi (Sun). Miðjumaður West Ham, Yossi Benayoun, mun skrifa undir nýjan fimm ára samning við liðið (Daily Mirror). Formaður Arsenal, Peter Hill-Wood, er á leið til Ameríku til viðræðna við auðjöfurinn Stan Kroenke (Daily Star). Manchester City gæti haldið Joey Barton þrátt fyrir árás hans á liðsfélaga sinn Ousmane Dabo (Daily Express). Að Lokum Rino Gattuso, leikmaður AC Milan, hefur fullvissað félaga sína um að eiginkona hans muni ekki styðja við bakið á Liverpool á miðvikudagskvöldið kemur. Hún er skosk en Gattuso sagði hana eiga á hættu að vera hent að heiman ef hún styddi Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira