Erlent

Friðargæsluliðar ganga götur í Mogadishu

MYND/AFP

Friðargæsluliðar Afríkusambandsins hófu í nótt að vakta götur í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu. Friðargæsluliðarnir komu til borgarinnar í mars en neyddust til þess að halda kyrru fyrir á flugvellinum vegna átaka í borginni. Flestir þeirra koma frá Úganda en alls eiga átta þúsund friðargæsluliðar að taka við af eþíópíska herliðinu sem nú er í Sómalíu.

Þeir segja að nú ríki ró í höfuðborginni en að mikið uppbyggingarverkefni sé fyrir höndum eftir einhver mestu átök undanfarin 15 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×