Erlent

Wolfowitz yfirheyrður í dag

MYND/AFP

Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans verður yfirheyrður af sérstakri rannsóknarnefnd í dag vegna ásakana um spillingu. Rannsókarnefndinni er ætlað að komast að niðurstöðu um það hvort Wolfowitz fái að sitja áfram í embætti.

 

Wolfowitz er ásakaður um að nýta sér völd sín til þess að kærasta hans fengi launahækkun. Wolfowitz hefur þegar beðist afsökunar á framferði sínu en þrátt fyrir það eru enn uppi háværar raddir um að hann segi af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×