Erlent

Sókn hafin gegn Talibönum

Mynd/afp

Yfir 2000 hermenn frá NATO ríkjum og Afganistan hófu í morgun aðgerðir sem miða að því að flæma þá af yfirráðasvæðum sínum í Sangin dal sem er miðstöð ópíum ræktar í landinu. Sóknin er leidd af Bretum og er einn liður í því að auka völd afganska forsetans Hamids Karzai í Helmand héraði en þau hafa verið óveruleg.

 

Yfirvöld greindu frá því að herliðið sé skipað um 1100 breskum hermönnum og 600 bandarískum. Einnig taka þátt hermenn frá Hollandi, Eistlandi, canada og Danmörku. Fjöldi Afganskra hermanna tekur einnig þátt í sókninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×