Erlent

Skotárás í Kansas

Byssumaður skaut tvo til bana og særði að minnsta kosti aðra tvo í verslunarmiðstöð í Kansas í Bandaríkjunum í gær. Maðurinn, sem einnig er grunaður um að hafa sært lögreglumann í öðru atviki fyrr um daginn var skotinn til bana af lögeglu. Yfirvöld rannsaka nú einnig hvort sami maðurinn hafi verið valdur að dauða eldri konu sem fannst látin á heimili sínu skammt frá verslunarmiðstöðinni.

 

Maðurinn hóf skothríðina á bílastæði verslunarmiðstöðvarinnar þar sem hann skaut fórnarlömbin tvö sem létust. Hann fór að því loknu inn í miðstöðina og hélt skothríðinni áfram, vopnaður rifli. Þegar lögregla kom á staðinn upphófst skotbardagi sem endaði með því að árásarmaðurinn var skotinn til bana. Enn er ekkert vitað hvað manninum gekk til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×