Charlton ekki lengur í fallsæti 6. apríl 2007 18:35 Getty Images
Charlton lyftu sér úr fallsæti með markalausu jafntefli gegn Manchester City í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var fátt um fína drætti í leiknum sem einkenndist af varnarleik á báða bóga. Hermann Hreiðarsson lék allan tímann í vörn Charlton. Charlton eru fyrir vikið með jafn mörg stig og Sheffield United og sama markamun en hafa skorað meira og eru því í sautjánda sæti en Sheffield í því átjánda. Sheffield á hins vegar leik til góða en þeir fá Newcastle í heimsókn á Bramall Lane á morgun. Mikil spenna er að hlaupa í fallbaráttuna og ljóst að neðstu liðin munu berjast til síðasta manns um hvert stig sem er í boði. Íslendingaliðið West Ham mætir Arsenal á Emirates Stadium á morgun en þeir hafa verið á ágætri siglingu í síðustu leikjum en eiga þar erfitt verk fyrir höndum. Nú er svo komið að aðeins er 6 stiga munur á liðinu í 13. sæti, sem einmitt er Manchester City, og liðinu í 18. sæti, Sheffield United. Watford er svo gott sem fallið, er með 20 stig kirfilega á botni deildarinnar og West Ham eru næst neðstir með 26 stig. Charlton og Sheffield eru svo með 31 stig í 17. og 18. sæti. Innan skamms hefst svo leikur Everton og Fulham. Everton-menn sigla lygnan sjó í efri hluta deildarinnar og eiga ágæta möguleika á að krækja í sæti í Evrópukeppni félagsliða en Heiðar Helguson og félagar í Fulham slást enn við falldrauginn, eru í 15. sæti með 35 stig, aðeins fjórum stigum frá fallsæti.
Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira