Erlent

Ástralar geta ekki stytt fangelsisvist Hicks

Oddur Ástráðsson skrifar
Getty Images

Ástralar munu ekki fá vald til þess að stytta fangelsisdóm yfir David Hicks sem kallaður hefur verið ástralski talibaninn. Hicks játaði sakir við réttarhöld í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu fyrr í vikunni en hann var sakaður um að hafa verið í þjálfunarbúðum Al-Kaída í Afganistan og aðstoðað talibana í stríðinu við Bandaríkjamenn.

Faðir Hicks hefur staðhæft að hann hafi bara játað til að sleppa frá Guantanamo, en þar hefur hann mátt dúsa í fimm ár. Hicks verður framseldur til Ástralíu en sem fyrr segir hafa Ástralar ekki heimild til að stytta fangelsisvist hans.

Hicks var sá fyrsti af um áttatíu sem á að mæta fyrir dóm í Guantanamo samkvæmt nýjum reglum Bandaríkjastjórnar. Mannréttindasamtök hafa fordæmt réttarhöldin, segja þau sýndarmennsku og hvetja til þess að réttað verði yfir þeim fyrir almennum dómstólum í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×