Erlent

Bretar segja gögn úr staðsetningartækjum sanna að sjóliðar voru Íraksmegin

Gögn úr staðsetningartækjum sanna að 15 breskir sjóliðar voru vel inni í írakskri lögsögu þegar þeir voru handteknir af Írönum á föstudaginn. Þetta segja talsmenn varnarmálaráðuneytisins í Bretlandi. Atvikið varð 1,7 sjómílur frá línunni á milli lögsaga landanna. Bretar hafa krafist þess að Íranar láti sjóliðana lausa og hafa hótað því að grípa til annara aðgerða dugi friðsamlegar leiðir ekki til. Íranar segja sjóliðana við góða heilsu en þeim er haldið föngnum í herstöð byltingarvarðliða í Teheran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×