Erlent

Bandaríkjaþing kýs um að kalla hermenn heim

AP

Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gærkvöldi að kjósa um áætlun um heimköllun alls heraflans í Írak fyrir haustið 2008. Repúblikanar höfðu lagt til að áætlunin yrði tekin úr fjárlögum hersins og ekki kosið um hana.

Bush forseti hefur hótað að beita neitunarvaldi ef lögin verða samþykkt. Samkvæmt tillögunni verður byrjað að flytja hermenn heim strax á þessu ári og allir yrðu komnir fyrir vorið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×