Erlent

Neyðarlög þarf í Norður-Írlandi

Stormont-kastali, þinghúsið í Belfast
Stormont-kastali, þinghúsið í Belfast Getty Images

Breska þingið þarf að samþykkja neyðarlög til að samkomulag Gerry Adams og Ian Paisley um að deila völdum á Norður-Írlandi síðan í gær geti orðið að veruleika. Frestur til að mynda stjórn rann út í gær en eftir fund þeirra Adams og Paisley sögðu þeir að stjórnin gæti tekið til starfa þann 8. maí. Því þarf sex vikur í viðbót.

Jack Straw, þingforseti neðri deildar þingsins segir að neyðarlögin verði lögð undir atkvæði þingmanna en biðlaði um leið til þeirra að samþykkja þau þar sem aðstæður væru óvenjulegar. Samkomulag Paisley og Adams er sögulegt og einstakt, enda var þetta í fyrsta sinn sem leiðtogar stærstu flokka mótmælenda og kaþólikka hittust augliti til auglitis í tvíhliða viðræðum. Þingforseti íhaldsmanna í breska þinginu lofaði stuðningi sinna manna við neyðarlögin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×