Erlent

Snarpir jarðskjálftar í Indónesíu

Jarðskjálfti upp á 6,0 á richter reið yfir eyjuna Súmötru í Indónesíu í morgun, um tveimur tímum eftir að annar stærri, 6,3 á richter hafði orðið. Tveir fórust í fyrri skjálftanum og þá greip um sig skelfing en eftir þann seinni hafa borist fregnir af mannfalli því staðarútvarpið segir níu hafa dáið. Skjálftarnir áttu báðir upptök sín inn í landi og því er ekki óttast um flóðbylgju í kjölfarið. Hins vegar er óttast er að tölur um mannfall hækki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×