Erlent

Áfram illfært á Skáni vegna ofankomu

Líkt og í Danmörku halda vandræði áfram á vegum úti á Skáni í Svíþjóð en þar hefur líka haldið áfram að snjóa. Eftir því sem fram kemur á vef sænska ríkisútvarpsins festu um 15 bílar sig í snjónum á Skáni í nótt en engan sakaði þó í óhöppunum.

Vegagerðin ráðleggur fólki að fara ekki út á þjóðvegina í Suður-Svíþjóð enda sums staðar þriggja til fjögurra metra háir skaflar. Allir snjómokstursbílar á svæðinu munu vera á vegum úti að reyna að opna þá en það hefur hingað til gengið illa þar sem mjög hvasst er á Skáni og því skefur strax aftur á vegina. Þá munu um 1200 heimili vera án rafmagns vegna illviðrisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×