Erlent

Cheney hefur áhyggjur af hernaðaruppbyggingu Kínverja

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti í morgun yfir áhyggjum sínum af hernaðaruppbyggingu Kínverja og lét í ljós efasemdir um að Norður-Kóreumenn myndu standa við sinn hluta samnings um að hætta kjarnorkutilraunum gegn stuðningi frá Vesturlöndum.

Cheney er nú í heimsókn í Ástralíu og í ræðu í Sydney lagði hann áherslu að bandarískir hermenn yrðu áfram í Írak til þess að berjast gegn því að heilagir stríðsmenn, eins og hann orðaði það, næðu fótfestu í Miðausturlöndum. Ekki eru allir Ástralir sammála honum um það því fjölmargir mótmæltu Íraksstríðinu á götum úti í dag.

Í ræðu sinni hrósaði Cheney Kínverjum fyrir sinn þátt í því að komist var að samkomulagi við Norður-Kóreumenn en lýsti um leið yfir áhyggjum af því að Kínverjar væru að koma sér upp tækni til að skjóta niður gervihnetti, en kínversk stjórnvöld gerðu tilraunir með hana í síðasta mánuði. Sagði Cheney þessa hernaðaruppbyggingu ekki í takt við markmið Kínverja um friðsamlegan uppgang þeirra í heiminum.

Þá sagði hann stjórnvöld í Pyongyang í Norður-Kóreu eiga enn eftir að sanna mikið fyrir umheiminum og að samkomulagið um að þeir hættu framleiðslun plútóns væri aðeins skref í átt að kjarnorkuafvopnum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×