Erlent

26 látnir í bruna í Lettlandi

26 manns létust þegar eldur kom upp á heimili fatlaðra í smábæ í vesturhluta Lettlands snemma í morgun. Frá þessu greindi velferðaráðherra landins. Eftir því sem Reuters-fréttastofan greinir frá var á þriðja tug slökkvilbíla sendur á vettvang en slökkviliðsmönnum tókst að bjarga um 40 vistmönnum úr brunanum. Búið er að slökkva eldinn og leikur grunur á hann megi rekja til rafmagsbilunar á heimilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×