Erlent

Rætt um frekari refsiaðgerðir gegn Íran á mánudag

Íranskir stúdentar hrópa slagorð gegn Bretum og Ísraelum í Teheran í gærk.
Íranskir stúdentar hrópa slagorð gegn Bretum og Ísraelum í Teheran í gærk. MYND/AP

Fulltrúar allra ríkja sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna munu ásamt Þjóðverjum hittast Lundúnum á mánudag til að ræða frekari refsiaðgerðir gegn Írönum eftir að þeir urðu ekki við kröfum Sameinuðu þjóðanna um að hætta auðgun úrans.

Fresturinn til hætta því rann út í fyrradag en samkvæmt skýrslu Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar hafa Íranar aukið auðgunina í stað þess að draga úr henni frá því að Sameinuðu þjóðirnar samþykktu ályktun í desember í fyrra um málið.

Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur því boðað til fundar í Bretlandi á mánudag með öðrum fastaríkjum öryggisráðsins og Þjóðverjum til þess að ræða um aðra ályktun gegn Írönum. Þeir hafna því algjörlega að hætta auðgun úrans og segja hana í friðsamlegum tilgangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×