Erlent

Hundrað ára fangelsi fyrir að nauðga og myrða táning í Írak

MYND/AP

Bandarískur herdómstóll hefur dæmt bandarískan hermann í 100 ára fangelsI eftir að hann viðurkenndi að hafa tekið þátt í að nauðga og myrða fjórtán ára stúlku og myrða fjölskyldu hennar í bæ suður af Bagdad í mars í fyrra.

Hermaðurinn, Paul Cortez, hafði komist að samkomulagi við ákæruvaldið um að vitna gegn þremur öðrum sem komu að glæpnum og þar sem hann hafði viðurkennt hann kom ekki til greina að hann yrði dæmdur til dauða.

Við réttarhöldin greindi Cotez frá því að að hefðu lagt á ráðin um árásina á fylleríi en þeir völdu tiltekna fjölskyldu í bænum Mahmudiya þar sem aðeins einn karlmaður var á heimilinu. Farið var með fjölskyldu stúlkunnar inn í herbergi og hún skotin en eftir það skiptust hermennirnir á að nauðga stúlkunni. Þeir myrtu hana svo og kveiktu í henni til að reyna að hylma yfir glæpinn.

Fréttir af málinu vöktu mikla reiði meðal Íraka í fyrra og juku mjög á spennu á svæðinu. Annar hermaður sem tók þátt í árásinni var í nóvember í dæmdur í 90 ára fangelsi fyrir glæpinn en eftir á að rétta yfir tveimur vegna hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×