Erlent

Prodi nær samkomulagi við samstarfsflokka

MYND/AP

Þeir flokkar sem áttu aðild að mið- og vinstristjórn Romanos Prodis, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, samþykktu í gærkvöldi að halda áfram stuðningi við hann.

Prodi baðst lausnar í fyrradag eftir að flokkar í ríkisstjórninni neituðu meðal annars að samþykkja að senda hermenn til Afganistan og stækka bandaríska herstöð á Ítalíu. Prodi lagði í gær fram tólf skilyrði fyrir áframhaldandi samstarfi við flokkana og á fundi í gærkvöld var gengið að þeim.

Þetta þýðir að Prodi mun í dag ganga á fund forseta Ítalíu og sækjast eftir umboði til að stjórna landinu áfram en það er í höndum forsetans að ákveða hvort hann fái það eða boðað verði til nýrra kosninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×