Allir vilja breytingar nema Bush 3. febrúar 2007 10:30
Ríkisstjórnir um allan heim segja brýnt að bregðast snarlega við til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eftir að svört skýrsla sérfræðinganefndar Sameinuðu þjóðanna birtist í gær. Ekki þó George Bush Bandaríkjaforseti sem hyggst ekki gangast undir alþjóðlegar skuldbindingar þrátt fyrir þær hörmungar sem boðaðar eru í skýrslunni ef ekkert verður að gert. Í skýrslunni, sem á þriðja þúsund vísindamanna frá 113 ríkjum unnu, segir að 90 prósenta líkur séu á að loftslagsbreytingarnar séu af manna völdum og hafi meðal annars valdið færri köldum dögum, heitari nóttum, mannskæðum hitabylgjum, flóðum, úrhellisrigningum, hrikalegum þurrkum. Þá er boðað að hitastig árið 2100 verði þremur gráðum hærra en nú og yfirborð sjávar hækki um 28-43 sentímetra. Evrópusambandið segir þetta sterkustu viðvörun sem menn hafa fengið til þessa. Bresk yfirvöld segja breytingarnar ógna friði og velsæld heimsbyggðarinnar. Bandarísk stjórnvöld segja skýrsluna mikilvæga en vilja ekkert aðhafast. Orkumálaráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkin hafa „fjárfest meira í rannsóknum á loftslagsbreytingum en öll önnur ríki samanlagt." Umhverfismálastjóri Evrópusambandsins, Stavros Dimas, segir að aldrei hafi verið brýnna en nú að alþjóðasamfélagið setjist niður og ræði í fullri alvöru hvernig ná megi alþjóðlegu samkomulagi um stöðvun hnattrænnar hlýnunar. Umhverfisráðherra Suður-Afríku segir óverjandi ef menn bregðast ekki við. Ekki hefur náðst í Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra Íslands.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira