Enski boltinn

Terry á batavegi

NordicPhotos/GettyImages

Svo gæti farið að fyrirliðinn John Terry kæmi aftur inn í leikmannahóp Englandsmeistara Chelsea í bikarleiknum gegn Nottingham Forest á sunnudaginn. Terry hefur verið frá keppni síðan 13. desember vegna kálfameiðsla en æfði með aðalliðinu í dag.

"Það væri frábært að fá hann aftur inn í hópinn því við höfum saknað hans mikið. Hann er fyrirliði og leiðtogi liðsins og allir vita hvað vantar í liðið þegar hans nýtur ekki við," sagði Ashley Cole.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×