Erlent

Gripinn með 50 þúsund bjórdósir

Þjóðverji á fimmugsaldri var gripinn af dönskum tollvörðum þegar hann keyrði yfir landamærin til Danmerkur með tæplega 50 þúsund bjórdósir á vörubílspalli og í tengivagni. Einnig leyndust þar 2.376 dósir af gosdrykkjum og 12 lítrar af vodka. Megnið af vörunum hafði maðurinn keypt í landamærabúð í Flensborg í Þýskalandi.

Bílstjórinn virtist þó undir það búinn að vera stöðvaður því á skammri stund náði hann að reiða fram rúma milljón íslenskra króna sem hann var krafinn um í tolla og bætur. Þá gat hann haldið áfram ferðinni til Sjálands, með farm sem á svipstundu var orðinn mun dýrari en upprunalega var reiknað með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×