Einstakt afrek 8. janúar 2007 17:01
Bandarísk kona synti tæpa tvo kílómetra í jökulköldu hafinu við Suðurheimskautið. Þetta þykir einstakt afrek og er aðeins vitað um einn annan mann þolir slíkan kulda. Það er Guðlaugur Friðþórsson sem synti um fimm kílómetra að landi eftir skipskaða austur af Heimaey fyrir meira en tuttugu og tveimur árum. Og enn standa vísindamenn á gati yfir þessu afreki. Sagt var frá bandarísku afrekskonunni Lynn Cox í fréttaskýringaþættinum 60 mínútur á Stöð2 í gærkvöld og fylgst með þegar hún synti tæpa tvo kílómetra meðal mörgæsa í nístingsköldum sjónum við Suðurheimskautið. Fyrir meðalmanneskju væri þetta glapræði og dauðinn vís innan fimm mínútuna, en Cox komst af þrátt fyrir að vera um hálftíma í sjónum, þar sem hitiastigið er um sex gráður. Hvernig hún fer að þessu og hvað það er sem gerir hana frábrugðna er í raun ekki vitað. Bill Keatingue, prófessor við Lundúnarháskóla, segir að aðeins sé vitað um eina aðra menneskju sem hafi lifað af eftir svo langan tíma í köldum sjó. Þar á prófessorinn við Guðlaug Friðþórsson sem öðlaðist heimsfrægð þegar vélbáturinn Hellisey, sem hann var háseti á, fórst suðaustur af Heimaey árið 1984. Fimm voru í háhöfn bátsins en Guðlaugur komst einn af. Hann synti um 5 kílómetra í land og aðstæðurnar voru öllu verri en þær sem Cox upplifði við Suðurheimskautið. Það var vonskuveður þessa nótt við Vestmannaeyjar og Guðlaugur gekk berfættur yfir hraunið, sem var þá enn heitt. Einstakt afrek og Guðlaugur í raun ofurkarl eins og enn og aftur er nú vitnað um.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots Innlent Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fleiri fréttir Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Sjá meira