Erlent

Egyptar mótmæla árásum á Ramallah

Forseti Egyptalands mótmælti hernaðaraðgerðum Ísraela í palestínska bænum Ramallah á einkafundi sínum með Ehud Olmert , forsætisráðherra Ísraels í dag. Fundur Olmerts og Hosni Mubaraks í egypska strandbænum Sharm el-Sheikh er tilraun til að stilla til friðar á svæðinu. Árásir Ísraela á Ramallah eru frekar sjaldgæfar.

Fjórir Palestínumenn létu lífið í árásinni og fjórir eftirlýstir menn voru teknir höndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×