Erlent

Rússar hóta Bretum

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Rússnesk stjórnvöld hóta yfirvöldum í Bretlandi alvarlegum afleiðingum eftir að fjórir rússneskir erindrekar voru reknir frá Bretlandi.

Mennirnir voru gerðir brottrækir eftir að rússnesk yfirvöld neituðu í gær að framselja Andrei Lugovoi,fyrrverandi KGB njósnara sem grunaður er um að hafa myrt Alexander Litvienko í London í fyrra.

Gordon Brown, forsætisráðherra Breta segir óháður dómstóll hafi dæmt fyrrverandi KGB mennina og því telji hann nauðsynlegt að mennirnir verði framseldir. Hann segir nauðsynlegt að Rússar samstöðu í málinu.

Talsmaður utanríkisráðuneytisins í rússlandi segir að afstaða Breta sé siðferðislega röng. Þeir verði að svara fyrir hana annars muni málið geta haft alvarleg áhrif á samskipti ríkjanna. Talsmaður Putins forseta tók í sama streng. Hann segir að rússnesk stjórnvöld geti ekki látið Breta hafa sig að leiksoppi.

Bretar hafa rétt á að óska eftir því að réttað verði yfir Lugovi í en þeir hafa þegar hafnað því




Fleiri fréttir

Sjá meira


×