Erlent

28 daga varðhald ekki nóg

Ekki er nóg að halda grunuðum hryðjuverkamönnum í 28 daga, sem er hámarkslengd gæsluvarðhalds án ákæru, að mati helsta ráðgjafa breskra stjórnvalda í hryðjuverkalögum, Carlile lávarðar.



Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, reyndi að fá í gegn 90 daga hámarkslengd gæsluvarðhalds en þingið minnkaði það niður í 28 daga. Carlile lávarður sagði jafnframt að dómarar en ekki þing ættu að ákvarða hámarkslengd varðhalds.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×