Erlent

Mikil andstaða við stjórnina í Pakistan

Hópur fólks kom saman í Gujranwala skammt frá Lahore í Pakistan í gær til að mótmæla árás hersins á herskáa múslima í Rauðu moskunni í síðustu viku.
Hópur fólks kom saman í Gujranwala skammt frá Lahore í Pakistan í gær til að mótmæla árás hersins á herskáa múslima í Rauðu moskunni í síðustu viku. fréttablaðið/AP

Um síðustu helgi létu meira en 70 manns lífið í sjálfsmorðsárásum og sprengjuárásum í norðvesturlandamærahéraði Pakistans. Stjórnvöld í Pakistan eru að kanna hvort tengsl séu milli árásanna og róttækra múslima í Rauðu moskunni í Islamabad, sem stjórnarherinn réðst á í síðustu viku.



Í síðustu viku hétu herskáir múslimar því að hefna fyrir árásina á moskuna, sem kostaði meira en hundrað manns lífið. Mikil andstaða hefur verið við stjórnina, einkum í norðvesturhluta landsins.



Um helgina lýstu leiðtogar helstu ættflokka í Norður-Waziristan, héraði sem liggur að landamærum Afganistans, því yfir að vopnahlé, sem þeir gerðu við stjórnvöld í Pakistan á síðasta ári, væri fallið úr gildi.



Í Norður-Waziristan er mikill almennur stuðningur við bæði talibana og Al Kaída, og telja pakistönsk stjórnvöld að róttæku múslimarnir í Rauðu moskunni hafi haft náin tengsl við herskáa hópa í Norður-Waziristan.

Á síðustu dögum hefur stjórnin sent þúsundir hermanna til héraðanna í norðvesturhluta landsins til þess að hafa hemil á starfsemi uppreisnarmanna, en þrátt fyrir það féllu 73 í árásunum um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×