Erlent

Fundu forna gullgrímu

Með gullgrímuna Georgi Kitov fornleifafræðingur sýnir fundinn.
Með gullgrímuna Georgi Kitov fornleifafræðingur sýnir fundinn. fréttablaðið/AP

Fornleifafræðingar fundu um helgina 2.400 ára gamla gullgrímu í fornu grafhýsi í Búlgaríu. Einnig fannst gullhringur með grískri áletrun og mynd af skeggjuðum manni auk annarra smáhluta í gröf frá tímum Þrakverja.



Stjórnandi uppgraftarins, Georgi Kitov prófessor, telur gripina hafa tilheyrt þrakverskum leiðtoga frá 4. öld fyrir Krist. Þróun menningar í Þrakíu var sambærileg þeirri forngrísku að sögn Kitovs.



Þrakverjar bjuggu þar sem nú er Búlgaría og að hluta til Grikkland, Rúmenía, Makedónía og Tyrkland. Ríki Þrakverja stóð frá 4.000 fyrir Krist til 8. aldar eftir Krist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×