Erlent

Palestínskum föngum sleppt

Ehud Olmert
Ehud Olmert

Ísraelsk stjórnvöld munu sleppa 250 palestínskum föngum úr fangelsi á föstudaginn. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, greindi Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, frá þessu á fundi þeirra í Jerúsalem í gær.



Flestir þeirra sem fá frelsið eru liðsmenn Fatah og afgangurinn frá minni hópum. Engum Hamas-liðum verður sleppt.



Ísraelsk stjórnvöld hafa undanfarið unnið að því að styrkja stöðu Abbas og Fatah-hreyfingar hans í Palestínu eftir að Hamas-samtökin lögðu undir sig Gaza-ströndina. Í kjölfarið myndaði Abbas nýja ríkisstjórn án aðkomu Hamas.



Olmert og Abbas munu funda á ný eftir tvær vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×