Eiður hefur ekkert sagt um United 17. júní 2007 07:00 nordicphotos/afp „
Eiður hefur ekkert kvótað eitt eða neitt. Ég efast stórlega um að hann hafi sagt þetta," sagði Arnór Guðjohnsen um meint ummæli Eiðs Smára Guðjohnsen í enskum fjölmiðlum í gær. Fréttir frá slúðurmiðlum þar í landi höfðu eftir Eiði að Manchester United væri klúbbur sem hann hefði áhuga á að ganga til liðs við ef hann færi frá Barcelona. „Hann er bara að einbeita sér að stöðu sinni hjá Barcelona þangað til annað kemur í ljós. Enskir fjölmiðlar hringdu í mig í gær [föstudag] og sögðu að hann hefði sagt eitthvað sem var ekki rétt. Ég er nánast öruggur að þetta sé ekki eftir hann," sagði Arnór. Umboðsmaður Eiðs segir jafnframt að Barcelona sé fyrir löngu búið að gefa út að mál leikmanna verði skoðuð eftir að deildakeppninni lýkur. „Það er alveg ljóst að það fer mikið af stað eftir þennan síðasta leik um helgina. Það er hans fyrsti valkostur að vera áfram hjá Barcelona en þessi knattspyrnuheimur er óútreiknanlegur. Hvernig Barcelona sér tímabilið á eftir að koma í ljós," sagði Arnór. Hann sagði jafnframt að United hafi séð mjög eftir því að hafa ekki keypt Eið frá Bolton á sínum tíma en félagið skoðaði það mál mjög vel. En er 100 prósent að Eiður verði áfram hjá Barcelona? „Málin standa þannig að hann er á samningi og vill vera hér áfram. Hvað tíminn leiðir í ljós veit enginn. Barcelona hefur ekki talað við neinn um framtíðina, hvorki mig né Eið, og gera ekki strax," sagði Arnór. Ef hann myndi fara frá Barcelona, er England þá hans fyrsti valkostur? „Eigum við ekki að segja að England sé það sem hann þekkir mjög vel til og auðvitað kallar það á menn. En eins og staðan er í dag er hann ekki með hugann við neitt annað en þar sem hann er," sagði Arnór. Eiður verður ekki með Barcelona í kvöld vegna meiðsla.
Enski boltinn Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Sjá meira