Fjögurra marka tap gegn Englendingum 18. maí 2007 00:01 Íslenska landsliðið fagnar hér marki í leik á Laugardalsvellinum en ekki tókst liðsmönnum að skora gegn Englandi í gær. fréttablaðið/e. ól.
Íslenska landsliðið tapaði í gær fyrir Englandi í æfingaleik sem fór fram á Roots Hall, heimavelli Southend. Leiknum lauk með 4-0 sigri Englendinga en tvö mörk voru skoruð í báðum hálfleikjum. „Þetta var erfiður leikur en enska liðið setti okkur undir mikla pressu megnið af honum,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari eftir leik. „Svo skora þær sitt annað mark á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks og það slær okkur út af laginu.“ England er nú að undirbúa sig fyrir HM í Kína í september og stillti upp sínu sterkasta liði í gær. „Ég held að England muni gera frábæra hluti á HM. Þetta lið ber til dæmis af þeim fjórum sem við mættum á Algarve Cup fyrr í vetur.“ Ísland hefur leik í undankeppninni fyrir EM 2009 gegn Grikkjum ytra í lok mánaðarins. „Þar verður vonandi annað uppi á teningnum því þar ætlum við okkur að sækja. En við mætum Frökkum síðar í sumar og nýtist þessi leikur vel fyrir hann enda Frakkar með álíka sterkt lið og England. Við sáum ýmis mistök í okkar varnarleik í kvöld sem við getum nú leiðrétt og þetta var virkilega góð reynsla fyrir stelpurnar okkar að mæta svo góðum andstæðingi nú,“ sagði Sigurður Ragnar. Tvo öfluga leikmenn vantaði í íslenska liðið í gær, þær Ásthildi Helgadóttur fyrirliða og Dóru Stefánsdóttur en báðar leika þær með Malmö í sænsku úrvalsdeildlinni. Ásthildur er meidd en Dóra ákvað frekar að berjast fyrir sæti sínu í Malmö og spila bikarleik með liðinu í vikunni.- esá
Fótbolti Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Fleiri fréttir KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Sjá meira