Erlent

Viðbúnaðarstig stórhækkað

Aukinn viðbúnaður sást meðal annars á lögregluvakt við Brandenborgarhliðið í Berlín.
Aukinn viðbúnaður sást meðal annars á lögregluvakt við Brandenborgarhliðið í Berlín. MYND/AP

Viðbúnaðarstig vegna yfirvofandi hættu á hryðjuverkum var hækkað í Þýskalandi í gær, á grundvelli leyniþjónustuupplýsinga sem bentu til aukinnar hættu á árás gegn þýskum borgurum í Afganistan eða jafnvel sjálfsmorðssprengjuárásum í Þýskalandi.

Meðal ástæðna til hækkaðs viðbúnaðarstigs er handtaka þriggja öfgamúslima í Pakistan, sem eru þýskir ríkisborgarar. Að sögn Jörgs Ziercke, yfirmanns þýsku rannsóknarlögreglunnar BKA, eru þeir taldir vera úr tíu manna hópi manna sem hafi sótt þjálfun í að fremja sjálfsmorðssprengjutilræði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×