Vaxandi umsvif Kínverja í Afríku 6. febrúar 2007 01:15
Hu Jintao Kínaforseti hélt í gær áfram yfirreið sinni um Afríku, sem hann hóf fyrir viku, og flaug frá Zambíu til Namibíu. Alls heimsækir hann átta Afríkulönd að þessu sinni, en ferðin vekur athygli á vaxandi umsvifum Kínverja þar syðra. Þetta er þriðja ferð Hus á þessar slóðir síðan hann varð fyrst varaforseti fyrir níu árum og forseti fyrir fjórum. Bæði þessi ferð og fyrsti kínversk-afríski leiðtogafundurinn, sem haldinn var í Peking í haust sem leið, eru til merkis um ört vaxandi tengsl asíska efnahagsrisans og hinnar náttúruauðlindaríku Afríku.Ört vaxandi umsvifÁ allrasíðustu árum hafa kínverskir ráðamenn farið hver á fætur öðrum í heimsóknir til Afríkulanda, notið þar safarí-ferða og látið heimamenn bera sig á höndum sér í þakklætisskyni fyrir ódýr lán án pólitískra skilyrða og umfangsmiklar fjárfestingar Kínverja í þessum löndum. Hlutur Kínverja í utanríkisviðskiptum Afríkuríkja sunnan Sahara hefur vaxið hröðum skrefum og var orðinn um tíu prósent á árinu 2005. Því er hann að það eigi eftir að tvöfaldast fram til ársins 2010. En eins og tímaritið The Economist bendir á eru nú merki um að veður séu að skipast í lofti hvað varðar umsvif Kínverja í Afríku. Í Sambíu, þar sem Hu varði helginni og undirritaði samninga um stórauknar fjárfestingar Kínverja í námuvinnslu, hét einn frambjóðandinn í forsetakosningum í fyrra því að hann myndi hrekja kínverska fjárfesta úr landi, næði hann kjöri, í kjölfar mannskæðra uppþota sem urðu í koparnámu í meirihlutaeigu Kínverja. Í Nígeríu, olíuauðugasta landi álfunnar, hafa kínverskir olíuverkamenn og verkfræðingar orðið skotspænir gíslatökumanna, rétt eins og vestrænir keppinautar þeirra í olíuiðnaðinum hafa ítrekað lent í. Kemur færandi hendiEn eins og venjulega kemur Hu færandi hendi hvar sem hann ber niður fæti í Afríkuferðinni. Þær hafa tvímælalaust átt þátt í að bæla gagnrýnisraddir. Strax við upphaf ferðarinnar boðaði hann alls um þriggja milljarða dollara viðbótarlán á kostakjörum til Afríkuríkja, og að þróunaraðstoð Kínverja við þau yrði tvöfölduð á næstu þremur árum. Það sem þiggjendum þessa fjár þykir einna mest um vert er að því fylgja ekki ströng pólitísk skilyrði eins og vestrænir lánardrottnar og þróunaraðstoðarveitendur tíðka að láta fylgja hverri greiðslu og hverju verkefni. Kínversku fjárfestarnir setja það lítið fyrir sig hvort ráðamenn í viðkomandi Afríkulandi eru sakaðir um að brjóta mannréttindi á þegnum sínum eða því um líkt. Þetta er það sem öðru fremur gerir Hu vinsælan og velkominn gest á viðkomustöðum hans í fátækustu álfu heims. Verndarhendi yfir SúdanstjórnÞað land sem vafalítið hefur notið þessa mest er Súdan. Súdönsk yfirvöld hafa gefið hinum kínversku fjárfestum mjög frjálsar hendur við olíuleit og -vinnslu í landinu. Um fimm prósent allrar þeirrar olíu sem Kínverjar flytja inn kemur úr súdönskum olíulindum. Á móti hafa Kínverjar stutt Súdan-stjórn með ráðum og dáð í rimmu hennar við alþjóðasamfélagið út af ófremdarástandinu í Darfúr-héraði, auk þess að kosta vegalagningar og önnur slík hefðbundin þróunarverkefni. Mestu hefur munað um stuðning Kínverja við að hindra að friðargæslulið á vegum SÞ fái að fara til Darfúr. Nærri ár er síðan öryggisráð SÞ samþykkti að senda slíkt lið á vettvang til að stöðva það sem bandarískir ráðamenn hafa gengið svo langt að kalla þjóðarmorð á svörtum íbúum Darfúr, en ráðamenn í Kartúm hafa getað staðið gegn því með fulltingi Kínverja. En með þessu fulltingi hætta Kínverjar á að verða álitnir meðsekir í blóðsúthellingunum í Darfúr. Diplómatískur þrýstingur fer því vaxandi á Kínverja að breyta um afstöðu í þessu máli og að þeir beiti áhrifum sínum í Súdan til að knýja stjórnina þar til að fallast á komu friðargæsluliðsins. Þótt Hu hafi staldrað við í Kartúm í tvo daga fyrir helgi bar þessi mál þó ekki á góma. Enga slíka skugga ber á viðdvöl Hus í Windhoek, höfuðborg Namibíu, þar sem tekið var á móti honum með trumbuslætti og dansi í gær. Viðræður hans við namibíska ráðamenn snúast um fjárfestingar í námuiðnaði, þróunaraðstoð og vaxandi áhuga fjölmennustu þjóðar heims á Namibíu, einu fámennasta landi Afríku, sem ferðamannalandi. Viðskipti landanna meira en tvöfölduðust á milli áranna 2005 og 2006.
Mest lesið Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Innlent Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Innlent Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Innlent „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Erlent Fleiri fréttir Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sjá meira