Erlent

Fylgi við konu á forsetastól

Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja að þjóðin sé tilbúin til að kjósa sér konu til forseta, en fylgi við demókratann Hillary Rodham Clinton og repúblikanana John McCain og Rudolph Giuliani mælist nánast hnífjafnt í nýjustu viðhorfskönnunum vestra.

Drjúgur meirihluti svarenda telur að kona á forsetastóli myndi sinna innanríkismálum á borð við heilbrigðis-, mennta-, félags- og orkumál, sem og viðbrögðum við náttúruhamförum, betur en karl. Konu er aðeins verr treyst í hermálum, samkvæmt niðurstöðum könnunar Siena-stofnunarinnar fyrir Hearst-dagblöðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×