Erlent

Afnám nauðungarhjónabanda

mótmæla órétti Þrjú þúsund konur mótmæltu óréttlæti gagnvart konum í Pakistan á alþjóðadegi kvenna, 8. mars í fyrra.
mótmæla órétti Þrjú þúsund konur mótmæltu óréttlæti gagnvart konum í Pakistan á alþjóðadegi kvenna, 8. mars í fyrra. MYND/AFP

Stærsti stjórnmálaflokkurinn í Pakistan hefur kynnt frumvarp um að banna nauðungarhjónabönd í landinu, þar með talin hjónabönd þar sem konur eru giftar mönnum til að sætta deilur samkvæmt fornri ættbálkavenju. Í frumvarpinu segir að þeim sem neyði konu í hjónaband skuli refsað með fangelsisvist í allt að þrjú ár og fjársekt.

Flokkurinn hefur meirihluta í báðum þingdeildum og styður forseta landsins, sem hefur heitið því að gefa konum meiri réttindi í samræmi við stefnu sína um að kynna Pakistan sem hófsama og framsækna múslimaþjóð. Annað ákvæði í frumvarpinu kveður á um að bannað sé að neyða konur í „hjónaband með hinum heilaga kóran,“ sem er enn stundað sums staðar í afskekktari hlutum Pakistan og felur í sér að konan sver við kóraninn að giftast aldrei. Gagnrýnendur segja þetta aðferð sem sé notuð til að hindra konur í að taka sinn hluta af jörð fjölskyldunnar með sér þegar þær giftist.

Að minnsta kosti 565 konur og stúlkur urðu á síðasta ári fórnarlömb svonefndra „heiðursmorða“, sem er næstum tvöfalt meira en árið áður samkvæmt tölum sem Óháða mannréttindanefndin í Pakistan kynnti fyrir skemmstu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×